Meistaramót Íslands 15-22 lokið
05.02.2012
Meistaramót Íslands 15-22 ára lauk rétt í þessu og erum við eyjafólk mjög ánægð með árangur okkar krakka. þau stóðu sig öll frábærlega og fullt af þrusu bætingum hjá þeim. Við náðum okkur einnig í hvorki færri en 3 verðlaun, 2 silfur og 1 brons og vil ég hrósa þeim fyrir þann árangur.
Þeir töffararnir sem tókust að ná verðlaunasæti voru Rúnar Kristinn Óðinsson í Langstökki og þrístökki. Árangur Rúnars var vægast sagt frábær en hann var að bæta sig í báðum greinum.
Í Langstökki átti hann 5,41m og stökk nú 5,60 og aðeins 3 cm frá fyrsta sætinu. Í Þrístökki átti hann 10,41m en stökk núna 11,60m og var aðeins 8 cm fá fyrsta sætinu, en þess má geta að hann leiddi keppnina lengst af. Rúnar bætti sig líka gífurlega í hástökki en fyrir keppnina átti hann 1,47m en fór núna 1,62m og rétt feldi 1,67m, hreint frábær árangur þar, til hamingju með það.
Ævar Örn Kristinsson tókst að hlaupa sig inní 3 sætið í 60 m spretthlaupi og bætti einnig sinn persónubesta tíma frá 7,65 sek í 7,60sek. til hamingju með það , Ævar keppti í fleiri greinum en átti eitthvað erfitt uppdráttar í fyrsta sinn.
Aðrir keppendur sem fóru á mótið voru Víðir Þór Guðnason, Brynjar Einarsson, Jóhanna Svava Gunnarsóttir, Ármey Valdimarsdóttir, Þóra Kristín Bergsdóttir, Guðrún Bára Magnúsdóttir og stóðu þau sig öll frábærlega og bættu mjög sinn pers,árangur.
Það má skoða heildarúrslit keppninnar
HÉR
Vil ég þakka fyrir frábæra helgi þar sem þau stóðu sig með sóma og voru til fyrirmyndar í alla staði sem forsvarsmenn eyjanna í íþróttum.
Kveðja
karen Inga þjálfari
Til baka