Æfing á Þriðjudag 24 janúar
23.01.2012
Æfing á morgun verður haldin á sama tíma og stendur í æfingatöflu. Aftur á móti breytist æfingasvæðið:)
í stað þess að mæta í íþróttahúsið þá verða æfingar fyrir 10-12 ára kl 15,00-16,00 haldin í Eimskipshöllinni, Nú erum við farin að æfa okkur vel fyrir Meistaramót Íslands svo við æfum mikið greinar sem við munum svo keppa í á mótinu:)
Æfingar hjá eldri iðkendum 13 og eldri verður einnig í Eimskipshöllinni á morgun þriðjudag á sama tíma og venjulega eða kl 17,00-18,00. Allar æfingar hjá þessum aldursflokki verða haldnar hér eftir í Eimskipshöllinni fram yfir íslandsmót sem er fyrstu helgina í febrúar, svo muna að mæta í Eimskipshöllina:)
Kveðja
Karen Inga
Íþróttafræðingur og frábæri þjálfarinn:)
Til baka